Nú er búið að bolta öll Héðinsfjarðargöng og eru Vatnsklæðningar ehf. langt komnar með að vatnsklæða öll göngin. Enn gengur allt samkvæmt áætlun inn í göngum og er áætlað að malbika í kringum mánaðarmótin júní-júlí. Starfsmenn eru nú byrjaðir að vinna á vöktum á næturna og það má því segja að allt sé á fullu allan sólarhinginn. |