EnskaÍslenska
6.07.2010 |
Malbikun hafin í Héðinsfjarðargöngum

Fyrri hluti malbikunar í Héðinsfjarðargöngum hófst 2. júlí s.l. eftir mikla vinnu Háfellsmanna undanfarið við undirbúning fyrir malbikun. Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas, sem er undirverktaki Háfells í göngunum, sér um malbikunina. 

Í þessum fyrsta áfanga var malbikunarstöð sett upp við höfnina á Siglufirði og verða "Siglufjarðargöng" malbikuð og inn í Héðinsfjörð.  Í seinni áfanganum, sem verður síðar í sumar,  verður malbikunarstöð sett upp á Ólafsfirði og þaðan malbikuð "Ólafsfjarðargöng" til Héðinsfjarðar. Steinefni í malbik eru að mestu flutt inn frá Noregi.

Öll umferð er lokuð um göngin enn sem komið er og vinnusvæðið sjálft er lokað öllum óviðkomandi. Stefnt er að opnun ganga 30. september n.k..

Til baka