Vegna mikillar vinnu framundan við Héðinsfjarðargöng óskar Háfell ehf. eftir reynslumiklum starfsmönnum strax. Við leitum að vönum tækjastjórnendum á Hjólaskóflur, hjólagröfur og beltagröfur, sem og bílstjórum (ADR réttindi æskileg). Einnig vantar okkur bifvélavirkja eða vélvirkja til að sinna verkstæðisvinnu sem og matráð í mötuneyti starfsmanna. Unnið er á vöktum í úthaldsvinnu allan sólarhringinn. Um tímabundna vinnu er að ræða en verklok eru 30. september 2010. Umsóknareyðublöð má finna hér til vinstri á heimasíðunni. Nánari upplýsingar veitir mannauðsstjóri í s: 5759500, Daníel yfirverkstjóri við Héðinsfjarðargöng veitir einnig upplýsingar í s: 863 9992. |