Verkkaupar:
Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir.
Verktaki:
Háfell ehf
Verktími:
Janúar 2006 -
Verkið:
Verkið felst í að leggja nýja norður akbraut Sæbrautar norðan núverandi vegar og á kaflanum milli Laugarnesvegar og Kambsvegar alls 1,2 km.
Breyta á gatnamótum Laugarnesvegar - Sæbrautar og framlengja Klettagarða frá Héðinsgötu að Sæbraut, samhliða því leggst tenging við Héðinsgötu af. Breikka á gatnamót (fjölga akreinum) Sundagarða og Dalbrautar við Sæbraut. Þá skal gera nýja göngustíga um allt vinnusvæðið.
Byggja á tveggja metra háan hljóðvegg frá Laugarnesvegi að húsi nr. 58 við Kleppsveg alls um 620 metra. Öll jarðvinna og lagnavinna er innifalin í verkinu ásamt rifi húsa við Klettagarða.
Verkefnastjóri Háfells er Valgeir Bergmann.
Verkstjóri er Daníel Gunnarsson.
Helstu magntölur:
Bergskeringar |
2.900 m³ |
Fylling úr skeringum |
3.800 m³ |
Fylling úr námum |
30.000 m³ |
Fláafleygur |
16.900 m³ |
Ónothæft efni á losunarstað |
62.600 m³ |
Neðra burðarlag |
11.900 m³ |
Efra burðarlag |
4.200 m³ |
Malbik |
41.300 m² |
Gangstígar |
12.300 m |
Kantsteinar |
10.800 m |
Frágangur fláa |
19.400 m² |
Hljóðveggur |
660 m |
Hitaveitulagnir |
1.850 m |
Vatnslagnir |
2.300 m |
Ídráttarrör |
8.150 m |
Símalagnir |
1.700 m |
Myndir frá framkvæmdum: